Fyrirtæki

Allur atvinnurekstur þarf á vátryggingum að halda, en þarfir fyrirtækja fyrir tryggingar ráðast af tegund starfsemi og umfangi. Skyndileg og óvænt tjón geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir afkomu og rekstur fyrirtækis séu nægjanlegar tryggingar ekki fyrir hendi.

Vörður býður upp á allar hefðbundnar tryggingar sem nauðsynlegar eru fyrir atvinnurekstur.

Eignatryggingar
Eignatryggingar vátryggja hvers kyns eigur, svo sem fasteignir, tæki og áhöld, birgðir og annað lausafé. Undir eignatryggingar fellur einnig rekstrarstöðvunartrygging.
 
 
Ökutækjatryggingar
Ökutækjatryggingar vátryggja gegn hvers kyns áhættum sem tengjast bifreiðum og akstri þeirra.
 
 
Persónutryggingar
Persónutryggingar vátryggja líkama manna og skert aflahæfi, hvort sem er vegna slysa eða sjúkdóma. Öllum atvinnurekendum ber að kaupa svokallaða launþegatryggingu á starfsfólk sem slysatryggir starfsfólk í vinnutíma.
 
 
Frjáls ábyrgðartrygging
Frjálsar ábyrgðartryggingar vátryggja fyrir bótaskyldu sem falla kann á atvinnureksturinn samkvæmt almennum skaðabótareglum.
 
 
Sjó- og farmtryggingar
Sjó- og farmtryggingar vátryggja fyrir hvers kyns áhættum sem tengjast skipum eða bátum sem og flutningi á vörum.

Sérfræðingar Varðar eru boðnir og búnir til þess að aðstoða atvinnurekendur við að aðstoða stjórnendur fyrirtækja við mat á vátryggingaþörf og sníða tryggingar að þeirra þörfum.