Bíllinn

Í samvinnu við SP-Fjármögnun bjóðum við upp á fjórar leiðir til að fjármagna nýjan eða notaðan bíl.

Viðskiptavinir Varðar njóta sérkjara hjá SP-Fjármögnun við fjármögnun á ökutæki:

  • A.m.k. 30% afslátt af lántökugjöldum bílaláns og stofngjaldi bílasamnings.
  • Helmingi lægra tryggingarfé ef samið eru um einkaleigu (einungis tvær leigugreiðslur í staðinn fyrir fjórar).
  • Lægri leigugreiðslur en á almennum kjörum, bæði í einkaleigu og bílasamningi.
  • Lægri vexti.

Bílalán: Fjármögnun fyrir einstaklinga og rekstraraðila sem vilja vera skráðir eigendur að bílnum.

Bílasamningur: Kaupleiga þar sem SP-Fjármögnun á bílinn þangað til samningurinn er uppgreiddur. Jafngreiðslulán fyrir einstaklinga og rekstraraðila.

Einkaleiga: Kjörin leið fyrir einstaklinga sem vilja leigja bílinn í fyrirfram ákveðinn tíma og losna þar með við að selja bílinn.

Rekstarleiga: Fjármögnun fyrir rekstraraðila sem ekki vilja binda fé í bifreiðum. Engin endursöluáhætta.