Slysatryggingar sjómanna
Hjá Verði skiptist slysatrygging sjómanna í fjóra flokka sem hægt er að velja á milli eftir aðstæðum eða skyldum hvers og eins.
- Slysatrygging sjómanna skv. siglingalögum, nr. 34/1985. Sóttdauðabætur og farangurstrygging skipverja eru innifaldar.
- Sama og 1. flokkur nema þessi trygging gildir allan sólahringinn en ekki eingöngu í vinnu við bát eða á sjó.
- Sama og 2. flokkur nema greiddir eru aukalega dagpeningar vegna slyss, 25.000 kr. á viku, með biðtíma í 1 viku og bótatíma í 51 viku.
- Slysatrygging samkvæmt kjarasamningum samtaka sjómanna við LÍÚ. Bótagrundvöllur er miðaður við skaðabótalög, nr. 50/1993, ef þær bætur yrðu hærri en kveðið er á um í siglingalögum.
Öllum þeim sem gera út bát í atvinnuskyni er skylt að kaupa slysatryggingu sjómanna.
Tengdar skrár