Altjónstryggingar
Altjónstrygging tryggir skip fyrir altjóni („Total-Loss“).
Altjónstryggingin greiðir bætur við eftirfarandi tjónsatvik:
- Skipið ferst eða verður fyrir svo miklum skemmdum að ekki er unnt að gera við það eða bjarga því.
- Skipið týnist eða hverfur.
- Árekstrarábyrgð.
- Björgunarkostnað.
Þessi trygging er ódýrari en hefðbundin húftrygging og á því vel við eldri skip þar sem vélarhlutar eru gamlir og myndu sæta afskriftum í tjónsuppgjöri húftryggingar.
Tryggingarfjárhæð er ákvörðuð sameiginlega af tryggingartaka og félaginu.