Sjótryggingar

Í skipum og bátum og rekstri þeirra eru iðulega bundnir miklir fjárhagslegir hagsmunir og því mjög mikilvægt að huga vel að vátryggingum vegna þessara hagsmuna.

Vörður býður upp á allar gerðir húftrygginga fyrir báta og skip auk annarra nauðsynlegra viðbótartrygginga, t.d. áhafnartryggingu og afla- og veiðarfæratryggingu.

Um langt árbil hefur verið í gildi samningur milli Landssambands smábátaeigenda LS og Varðar um tryggingar á bátum félagsmanna. Þessi samningur tryggir félagsmönnum LS aðgang að bestu kjörum á tryggingum og þjónustu sem völ er á hverju sinni.