Rekstrarstöðvunartrygging

Komi til tjóns, sem veldur því að rekstur fyrirtækis stöðvast, veldur það iðulega enn meira tjóni því að fyrirtækið missir tekjumöguleika sína um lengri eða skemmri tíma.
Rekstrarstöðvunartrygging greiðir fyrirtæki venjulega framlegð þess á meðan rekstrarstöðvun varir sem bótaskyld er úr lausafjártryggingu þess eða m.ö.o. vegna bruna-, vatns-, eða innbrotstjóns.
Iðgjald rekstrarstöðvunartryggingar fer eftir tryggingarfjárhæð hennar en hún er fundin út miðað við síðasta rekstrarreikning fyrirtækisins.