Víðtæk eignatrygging
Þessi trygging hentar mjög vel þeim sem eiga dýra og oft viðkvæma hluti, sem er mikilvægt að tryggja gegn tapi eða skemmdum, eins og
- myndavélar
- upptökuvélar
- tölvubúnað
- hljóðfæri
Þessi trygging bætir tjón á hlutum sem geta orðið vegna skyndilegra og óvæntra óhappa í flutningi, notkun eða geymslu. Hefðbundnar heimilistryggingar taka ekki alltaf á algengum óhöppum eins og að missa hlutinn í gólfið. Víðtæk eignatrygging er kjörin fyrir þá sem vilja vera vissir um að munir þeirra séu vel tryggðir en bótasviðið er mjög víðtækt og gildir hvar sem er.
Starfsfólk Varðar áhættuskoðar alla hluti áður en þeir eru tryggðir og ákveður verðmætið í samráði við viðskiptavininn. Sjálfsábyrgð af tjóni er 10% en þó ekki lægri en 12.000 kr.