Bílaábyrgð
Hægt er að tryggja nýja og notaða bíla með bílaábyrgð Varðar en sú trygging tekur til bilana eða galla í vélbúnaði bifreiða. Hún á sérstaklega við þegar ábyrgð framleiðanda bílsins gildir ekki eins og þegar um beinan innflutning bifreiða til landsins er að ræða.
Tvær tegundir af bílaábyrgð
Grunnábyrgð
Tekur til bilana eða galla í mikilvægum hlutum vélar og drifbúnaðar.
Víðtæk ábyrgð
Tekur til bilana og galla í flestum kerfum bílsins, s.s. vél, drifbúnaði, rafmagni, bremsum o.s.frv.
Hægt er að velja í hversu mörg ár tryggingin á að gilda. Henni lýkur þó við eftirfarandi tímamörk, hvort sem fyrr ber að höndum.
- Bíll ekinn 130.000 km
- Bíll nær 5 ára aldri frá fyrsta skráningardegi
Minni vandræði með viðgerðir
Þegar bíll er tryggður með bílaábyrgð Varðar þá þarf ekki að standa í þrefi við framleiðanda eða umboðsmenn um hvort bilun á rætur að rekja til verksmiðjugalla. Bótaskyldar viðgerðir eru bættar hjá Verði.
Ókeypis bílaleigubíll
Tryggingin tekur til kostnaðar vegna flutnings bíls á verkstæði og bílaleigubíls í allt að sjö daga standi viðgerð lengur yfir en einn sólarhring.
Betra endursöluverð
Við kaup á bílaábyrgð ákveður tryggingartaki til hversu langs tíma hún nær og greiðir iðgjaldið í upphafi tryggingartímans fyrir allt tryggingartímabilið. Þess vegna fylgir bílaábyrgð Varðar bifreiðinni ef hún er seld. Það gæti gert endursölu auðveldari og aukið verðmæti hennar.
Til þess að tryggja notaðan bíl er nauðsynlegt að leggja fram hjá félaginu ástandsskoðun bílsins frá viðurkenndri skoðunarstöð. Félagið áskilur sér rétt til þess að hafna tryggingu á bíl án sérstakra skýringa. Ástæður þess geta verið slæmt ástand bifreiðar við tryggingartöku eða að hún sé af tegund sem almennt er ekki seld á Íslandi og varahlutir eða viðgerðarþjónusta því ekki aðgengileg.
Starfsmenn Varðar veita allar nánari upplýsingar.