Kaskótrygging
Kaskótrygging bætir eignatjón á ökutækinu ef eigandi eða ökumaður á sjálfur sök á óhappinu einnig ef ökutækið verður fyrir utanaðkomandi tjóni sem veldur skemmdum á því.
Kaskótrygging bætir eigið tjón á ökutæki sem verður t.d. vegna
- áreksturs
- útafaksturs
- veltu
- bruna
- þjófnaðar
- skemmdarverka
Viðskiptavinir velja sér sjálfsábyrgð við töku tryggingarinnar, en upphæð sjálfsábyrgðar er einn af þeim þáttum sem ákvarðar iðgjaldið sem greitt er fyrir trygginguna. Viðskiptavinir, sem eru í Grunni og eru með bifreið sína kaskótryggða, eiga einnig rétt á bílaleigubíl í allt að fimm daga vegna tjóns.
Akstur utan vega
Utanvegakaskó er innifalið í kaskótryggingu Varðar. Verði tjón sem fellur undir þann þátt tryggingarinnar ber vátryggingartaki þrefalda sjálfsábyrgð. Undanskilin eru tjón sem verða við vað vatn flæðir inn í vélarhús, farþega- eða farangursrými.