Um okkur

Vörður hefur það markmiði að bjóða viðskiptavinum viðeigandi vátryggingavernd á samkeppnishæfu verði. Félagið leggur áherslu á einföld og þægileg vátryggingarviðskipti og persónulega þjónustu.

Vörður hefur á að skipa þjónustulipru og vel upplýstu starfsfólki sem vinnur í fjölbreyttu og hvetjandi starfsumhverfi. Lögð er áhersla á traust og áreiðanleika í samskiptum.

Vörður leggur áherslu á einfaldar og öruggar tryggingar á hagstæðu verði. Starfsfólk Varðar vinnur markvisst að því að efla þjónustu og vöruframboð. Heildartryggingalausnir eru í boði fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki.
 
Vörður tryggingar hf. er í eigu BankNordik (áður Føroya Banka), NBI hf. (Landsbankans), Byrs sparisjóðs og SP-Fjármögnunar.
 
Vörður líftryggingar hf. er í eigu BankNordik, Varðar trygginga hf. og NBI hf. (Landsbankans).