Vörður með ánægðustu viðskiptavinina
Ánægðustu viðskiptavinir tryggingafélaga árið 2009 voru hjá Verði tryggingum samkvæmt niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar sem kynntar voru í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem Vörður trónir á toppnum í flokki tryggingafélaga en félagið hefur sótt jafnt og þétt í sig veðrið frá því það tók fyrst þátt í ánægjuvoginni árið 2007. Þá var félagið í þriðja sæti, ári síðar var Vörður í öðru sæti og í ár var toppnum náð. Öll fjögur tryggingafélögin á markaðnum taka þátt í Íslensku ánægjuvoginni.
Vörður mældist með 68,4 stig af 100 mögulegum og bætir sig um 3 stig frá síðasta ári, sem er mesta bæting tryggingafélaga milli ára.
„Það er ómetanlegt fyrir okkur að fá þessa viðurkenningu frá þeim sem skipta mestu máli í starfsemi Varðar – viðskiptavinum okkar. Það hefur verið eitt af meginmarkmiðum okkar síðustu ár að gera viðskiptavini Varðar að þeim ánægðustu á landinu og með dugnaði og elju starfsfólks Varðar hefur það tekist strax á þriðja ári sem við tökum þátt í ánægjuvoginni. Ég vil nota tækifærið og þakka starfsfólkinu fyrir frábært starf og viðskiptavinum fyrir það traust sem þeir sýna okkur. Um leið vil ég segja að við munum nýta þetta sem hvatningu til að gera enn betur á þessu ári,“ segir Guðmundur J. Jónsson, forstjóri Varðar trygginga.
Þetta er í ellefta skipti sem Samtök iðnaðarins, Stjórnvísi og Capacent Gallup mæla ánægju íslenskra fyrirtækja með þessum hætti. Að þessu sinni voru 25 fyrirtæki í 5 atvinnugreinum mæld, en niðurstöður byggja á svörum rúmlega 6.000 manns, eða um 250 viðskiptavina hvers fyrirtækis. Nánari upplýsingar um íslensku ánægjuvogina má finna á
www.stjornvisi.is/Islenskaanaegjuvogin/.
Til baka